Skondið
16.07.2007 12:14:35 / Skúbícat Special

MA Elsa

Komið þið sæl.

Mig langaði bara að deila því með ykkur að ég var að frá bréf frá King's háskólanum í Lundúnum um það að ég er formlega orðin Master í heimspeki.

Ritgerðin mín fær hæstu einkunn og ég því að vonum hæstánægð :D

Kveð í bili...

Master Elsa Prinsessa

 

p.s. minni á myndasíðuna mína www.flickr.com/photos/elsaprinsessa


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.04.2007 22:23:04 / Skúbícat Special

Ég er að skrifa og skrifa og skrifa og skrifa! Er að reyna að færa rök fyrir því að fagurfræðileg gildi eigi megi vega meira...já þegar kemur að náttúrunni. :D

Hey annars, kannski ég skrifi eitthvað meira hér þegar ég hef tíma til að skrifa eitthvað annað en MA ritgerðina. Já og af hverju er ég þá að eyða tíma í að skrifa hér? Díses, ég skrifaði þetta "hér" með joði OMG. Eitthvað er maður nú orðinn gúgú ga ga já og þvílík þvæla ég er komin með æði fyrir chill out tónlist. Kannski er það af því hún er svo fín sem bakrunnstónlist þegar ég er að skrifa :O

M.I.A.O. ég vildi að Lilla gæti bara skrifað fyrir mig. Hún liggur nú alltaf í bókunum!

 EBM


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.03.2007 00:17:49 / Skúbícat Special

Myndir já

Má ég benda á þennan hlekk:

http://www.flickr.com/photos/elsaprinsessa/sets

 :D

 Og hérna ég veit ekki hversu mikið ég mun nenna að blogga meira þarsem myndirnar bara tala sínu máli fyrir mig!

EBM


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.02.2007 20:28:44 / Skúbícat Special

Myndir

Hæ hó ég er að vinna í því að setja inn fleiri myndir á síðuna. Svo endilega kíkið bráðum við og vonandi verða þær komnar sem fyrst.

Hasta luego lucas......


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.12.2006 13:07:21 / Skúbícat Special

Hver elskar ekki ófarir?

Með því fyndnara sem ég veit eru ófarir annarra.

Mmm nei Ingibjörg ég lærði ekkert á kjaftshögginu sem ég fékk frá þér fyrir að hlægja (reyndar mjög mikið) þegar þú flaugst á nefið og braust það næstum á svellinu fyrir utan Laugarnesskóla. Og þú mátt lemja mig eins mikið og þú vilt með viskustykkjum en ég mun aldrei hætta að hlægja að því þegar ég hljóp á þig þarsem þú stóðst stolt með rjómatertuna sem þú hafðir eytt allri eyðunni í að skreyta fallega eftir matreiðslutímann og þú fékkst hana beint í andlitið litla rjómaklessan mín :P

Það liggur kannski í stjörnunum en það er allt fyndið núna!

Sko, ég fór í King’s party í gær og hitti aftur krakkana og kennarana í gær, ferlega gaman! En þar er læknir sem er ansi mikill furðufugl, hefur unnið með Læknum án Landamæra í Afganistan og ýmislegt fleira undarlegt. En hann semsagt hjólar út um allt og stuttu áður en skólinn byrjaði hjá okkur lenti hann víst í svakalegu slysi á götunum hér í London og var vart hugað líf, en hann missti stóran hluta af minninu. Hann hafði miklar áhyggjur af prófalestrinum! En hann gafst ekki upp og hjólar enn. En hann lenti í slysi fyrr í vikunni og stangaðist á hausinn og missti allar framtennur! Ég hló í hvert skipti sem ég horfði á hann í gær, ég meina, það er ekki annað hægt!!!! Maðurinn lítur út eins og hálviti, vá, þegar hann brosir….ég meina úffff. Að þala um heimþpeki og oll helþtu vandamál heimþinþ án fðamtanna er einfaðdlega yfirgengilega fyndið! Hann lamdi mig alltaf í öxlina þegar ég hló, er svolítið aum í henni núna.

En núna gekk hann Maurice, vinur minn í vinnunni (mjög virðulegur Breti), inn um dyrnar með þetta stærðarinnar sár á nefinu! Hvernig ætli hann hafi fengið það?!

….ok ok….

HANN STAKK NEFINU Í SKJALATÖSKUNA OG HÚN LOKAÐIST! HAAHAAHAAHAAHAAHAAHAA

Guð minn almáttugur ég bara lifi þetta ekki af! Ég þurfti að fara fram til að klára hláturinn! En ég skammast mín ekkert fyrir að hlægja að óförum annarra því ég veit ekkert fyndnara en mínar eigin!!!!!!!!!!!!!! Aha, Ebba veit það vel! Jamm, ég labbaði á hurð í síðustu viku fyrir framan stútfullt fundarherbergi! Íeí!


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.10.2006 17:23:34 / Skúbícat Special

Djöfull

....nenni ég þessu ekki!

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.08.2006 19:05:48 / Skúbícat Special

Streetwars - Killer

Þetta er með því fyndnara sem ég hef vitað um.

http://www.streetwars.ca/

Þetta er leikur sem fer fram í London meðal annars þarsem fólk er í vatnsbyssustríði!!!

Þetta er ídeal fyrir fólk sem er að skrifa mastersritgerðir......


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.07.2006 19:03:28 / Skúbícat Special

Þolpróf

Jæja ég fór til ofnæmislæknis í gær, sem er nú ekki frásögu færandi nema að okkur grunar að ég sé með ofnæmi fyrir Smirnoff vodka og rykmaurum og rækjum. En sko þeir sem eru með ofnæmi fyrir rykmaurum eru víst sjálfkrafa með ofnæmi fyrir rækjum. Þær eru semsagt rykmaurar hafsins!

En læknirinn vill fá mig í þolpróf upp á spítala sem felst í því að ég mæti með vodkaflöskuna og svo á að hella mig fulla þar til að sjá hver viðbrögðin mín verða. Aldrei lent í því að þurfa að drekka að læknisráði. FUN!

Annars nýt ég þess í tætlur að vera hér á landinu í vonda veðrinu og mannfæðinni. Sakna samt Apakattarins míns...

EBM


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.06.2006 08:34:03 / Skúbícat Special

Heima er best...

...ískalt!

Ég sit hér í sól og hita í sumarfötunum og íhuga hvað í veröldinni ég er að hugsa að vera að æða heim í kvöld. Brrrrrrrrrrr.....

Hér í London hefur verið sól nærri upp á hvern einasta dag í júnímánuði. Ekkert smáræði. Í gær fór ég að horfa á Brazilíuleikinn á Brazilíubarnum í London með Flavíu og það var þvílíkt gaman. Þvílíkur blóðhiti! Menn voru gjörsamlega trylltir og það heyrðist ekkert í leiknum fyrir trumbunum sem þeir lömdu eins og þeir ættu lífið að leysa. Svo í hálfleik var dansatriði og ég hélt að ég væri komin á Kjötkveðjuhátíðina því salurinn dansaði ekki minna en fólkið á sviðinu!

Eitthvað annað að horfa með Brazilíumönnum heldur en Bretum!!! Flavía sagði mér líka að boltamennirnir þeirra væru Guðir í heimalandinu og þetta líktist kannski mest blóti.

Jæja nú er best að fara að pakka :D Sjáumst.

Elsa


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.06.2006 13:22:42 / Skúbícat Special

Bátapartý

Jæja þá eru komnar nýjar myndir inn á síðuna mína loksins!

Þetta eru myndir frá hinu alræmda bátapartýi sem við Raggi fórum í með vinum okkar hér í London. Það var diskóþema og báturinn sigldi um Thames með 150 brjálaða partýgesti. Þetta var allsvakalegt og endaði svo með flugeldum yfir Tower Bridge (sem var reyndar hrein og klár tilviljun).

Njótið vel!

Elsa


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.06.2006 10:57:18 / Skúbícat Special

Mesti hiti í Bretlandi í 80 ár...

... var í gær. Meiriháttar veður. Við Ebba fórum í Hampstead Heath og bökuðum okkur allsvakalega en hitinn og rakinn var þvílíkur að það líktist helst sánubaði. Svo vöknuðum við í nótt við hellidembu og í dag er sem betur fer andvari sem svalar okkur aðeins. Ekki veitti af að skola af borginni eftir allan rakann.

Við sátum hálfnaktar hér í gærkvöldi og drukkum og skvettum á okkur vatni og spjölluðum við Stefaníu á msn, en hún er að Kabbojast í Dallas í öðrum eins hita. Mér skilst að heima séu 7 gráður....

Stefanía kenndi okkur nýtt orð í gær: Maximus Retardus, en ég ætla sannarlega að bæta því í orðasafnið mitt og nota það óspart.

Annars kem ég heim eftir 2 vikur! Eeeeeeeeeeeeeeeeehaaaaaaaaaaaaaaaaaaa

Já og verð í mánuð. Ekki slæmt!

Els (eins og Bretarnir segja)


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.05.2006 10:05:12 / Skúbícat Special

182 Elsa

Frá Wikipedia:

182 Elsa is a Main belt asteroid. Its surface is brightly coloured and its composition a mixture of silicate rocks and iron-nickel metals.

It was discovered by Johann Palisa on February 7, 1878 (öld áður en ég fæðist). The origin of the name is uncertain; it may be named after the character in the legend of Lohengrin perpetuated by Richard Wagner's opera of the same name.

It rotates very slowly; its rotation period is about 3.3 Earth days. A possible companion (Raggi?) has been proposed to explain the slow rotation.

Elsa has very amplified lightcurve indicating an elongated or irregular body.


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.02.2006 16:54:06 / Skúbícat Special

Fögur orð

Mig langaði að deila með ykkur þessum síðasta hluta af mínu uppáhaldsljóði sem heitir Ferðalok. Eftir Jónas Hallgrímsson.

Háa skilur hnetti
himingeimur,
blað skilur bakka og egg.
En anda, sem unnast,
fær aldregi
eilífð að skilið.

8| fagurt?


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Myndasöfn